fannst nú tími til kominn að fara að heyra frá fólkinu, ætli það komi einhver á þessa síðu??? ...en ég er nú orðin soooooldið spennt fyrir öðrum í jólum ;) Er ég sú eina eða hvað??
Við Beggi ræddum saman um daginn og vorum sammála um að nú væri komið að kvenmanni að halda partýið okkar, þar sem við höfum jú haldið 5 partý og ég eini kvenmaðurinn sem hefur haldið, og það var btw fyrsta partýið. Ég veit alveg um nokkrar stúlkur sem hafa aðgang að húsum foreldra sinna og hvet ég þær því til að hugsa sinn gang og tékka á stöðunni. Ef svo óheppilega myndi vilja til að stúlkurnar finna ekki húsnæði eða leyfi frá M&P þá eigum við nú nokkra góða sveina sem geta kannski bjargað okkur eins og svo oft áður... en ég vil minna á það þegar foreldrar eru spurðir að við erum orðin 21. árs og mörg að verða 22. og við EIGUM að geta hagað okkur skynsamlega og tel ég að síðasta partý hafi farið mjög siðsamlega fram.
Bara svo ég minni nú á hverjir hafa haldið partý:
ÉG FREYSTEINN EMIL BJARKI BEGGI
Hinir skulu taka þessi skilaboð til sín.. nema þeir sem af augljósum ástæðum hafa ekki möguleika á heimboði.
Bið ykkur vel að lifa og vonandi les þetta einhver.......
Lena
P.S. Minni líka á myspacið sem er mjög þægilegur samskiptavefur ;)
Hey þið. í sambandi við myspace-ið.. við verðum að vera dugleg að nota það! :) Var að öppdeita það aðeins áðan.
Setti inn þarna draslið sem er hér inni á blogginu... "um okkur í dag", og ég geri ráð fyrir að fólk vilji gera töluverðar breytingar, þar sem þetta var gert fyrir ári síðan hjá flestum.
Sumir búsettir annarsstaðar, komnir með aðra maka og hvaðeina. Þannig að endilega fiffið þetta til! og þeir sem eru ekki búnir að gera þetta, endilega drífa í því. Bara gaman! (fyrir noobs, þá farið þið í edit profile, og þetta er inní heroes) Þið megið líka endilega setja inn myndir fyrir ofan lýsinguna á ykkur. (Ef þið kunnið... nenni ekki að útskýra).
förum svo að setja inn myndir á mæspeisið og svona! ég þori að veðja að flestir geta grafið upp einhverjar fyndnar myndir frá skólagöngunni okkar í gegnum árin.
til að komast inná accountinn, þá er mailið hofn87@gmail.com og passw: gulla1 (jájá ég set þetta hérna fyrir framan alla, en ég trúi ekki að einhver hati okkur það mikið að hann vilji eyðileggja myspace-ið okkar!)
Ef þið nennið ekki að logga ykkur inn, þá megið þið líka bara senda pm á accountinn með breytingunum. Ég logga mig stundum inn og get þá bætt þessu við.
nóg í bili. bæbbs
p.s er ég sú eina sem er að deyja úr spenningi fyrir 2. í jólum?
Jææææja, hvað segiðið þá? Einhver tilbúinn að bjóða okkur öllum elskunum í 87 árgangnum heim til sín í svolítið teiti að kveldi annars dags jóla??? Þetta hefur nú heppnast vel hjá okkur undanfarin ár, og núna erum við orðin jafnvel enn eldri og dannaðari! ;)
Spurning hvort þessir svölu kumpánar mæti... Væri nú ekki verra!
Sælir kæru bekkjarfélagar! Er ég sú eina sem kíki öðru hvoru inn á þessa síðu og er alltaf jafn leið þegar ég sé hve daufur þessi árgangur er í blogginu? En allavegna, mér finnst ekki seinna vænna en að fara að huga að annan í jólum partýi, ef ég man rétt þá buðu tveir aðilar sig fram til að halda partýið góða, veit ekki hvort þeir muna eftir því en ég man allavegna eftir því og ég lofaði að gleyma því ekki :) Annars er nú bara allt gott að frétta af mér, er á öðru ári í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands og líkar bara skrambi vel. Leiðinlegt að ég rekst aaafar sjaldan á Hornfirðinga og hvað þá úr mínum eigin árgangi í skólanum. Með skólanum vinn ég svo á skammtímavistun fyrir fötluð börn. Fyrir utan það stunda ég húsmóðurstörf, fer í ræktina og djamma. Vonandi les þetta einhver ;)
Kæru bekkjarsystkin... Hafið það svaðalega gott um páskana lömbin mín, og ekkert sull og bull yfir hátíðirnar ;) Passiði svo að gefa engum með ykkur af páskaegginu ykkar og alveg bannað að skilja eftir bita... þið gætuð þurft að sjá eftir því síðar! ...nei uss ekki er þetta nú rétti andinn. Endilega að gefa með sér svo maður fitni ekki einn úti í horni! Þessa páskana fæ ég finnskt múmínegg. Eeen svo var hún mútta mín líka svo hugulsöm að senda mér íslenskt páskaegg, svo maður verður víst að belgja sig út af súkkulaði... Góðar stundir, kv. Sara Eik
Jæja jæja, haldiði ekki bara að hún Lena okkar eigi afmæli í dag. Sem þýðir að hún er orðin tvítug! Óskum henni innilega til hamingju með daginn, með von um bjarta framtíð.
Ég ætla að hafa hérna 3 myndir með sem lýsa Lenu Hrönn í hnotskurn:
Lena á súlunni í Búlgaríu!
Lena fer á kostum á þorrablóti suðursveitunga og mýramanna!
Stutt og laggóð færsla. Ef ykkur langar til að hlæja, þá mæli ég með því að þið farið á Google , veljið Myndir og skrifið "Saltkjöt" og lítið til hægri. Ég vísa þessari færslu sérstaklega til Lenu.
Fyrst að Sigurður þurfti að koma þessari annars glæsilegu og kynþokkafullu mynd með set ég hér inn restina, þó án efa sú sem Siggi setti inn sé langflottust ;)
Læt eina góða fylgja með af okkar kæra bekkjarfélaga Þór Imsland.
Kveðja, Lena. P.S. Gaman ef einhverjir eiga einhverjar skemmtilegar myndir eða eitthvað skemmtilegt að segja, endilega að skella því inn, gaman að heyra frá öllum ;)
Er enginn annar en Bjarni Malmquist (eða Malmquias eins og stóð í bekkjarkladdanum í 8. bekk)
Já, það ráku kannski margir upp stór augu í gær þegar þeir vöknuðu seint eftir erfiði næturinnar og kveiktu á sjónvarpinu sínu. Jú, afmælisbarnið var í sjónvarpinu að gera það sem hann gerir best, að keppa í frjálsum, eða nánar tiltekið að keppa í langstökki, 200 m hlaupi og 4x400 metra boðhlaupi. En í boðhlaupinu setti hann og hinir úr boðhlaupssveitinni nýtt Íslandsmet. Bjarni er nú farinn að keppa fyrir Fjölni, sem urðu í 2. sæti á mótinu. Glæsilegur árangur það.
Það segir líka sitt um hann að einu myndirnar sem hægt er að finna af honum á netinu eru af honum að taka við einhverjum verðlaunum.
Hérna var hann sæmdur titlinum: Íþróttamaður USÚ 2005.
Hérna er hann að taka við einhverjum öðrum verðlaunum.
Til hamingju með daginn gamli, og gleymdu nú ekki hvaðan þú ert, þó þú farir að keppa einhversstaðar úti í heimi, því eins og ég hef alltaf sagt: Allir Þinganessmenn eru frá Stapa.
Ég veit ekki með ykkur, en ég grenjaði af hlátri þegar ég sá þessa mynd allt í einu á forsíðu Hornafjörður.is. En fyrir þá sem ekki vita, má þarna sjá tvær knattspyrnustúlkur úr okkar árgangi.